Fréttasafn

14. nóvember, 2023

Þriðjudaginn 7. nóvember var kynning á YAP hreyfiprógrami í leikskólanum okkar og var þessi YAP kynning var sérstaklega fyrir stjórnendur og starfsfólk leikskóla á Suðurlandi. Markmiðið var að vekja áhuga …

Read More »

Lesa Meira >>

Orð eru ævintýri

20. mars, 2024

Í gær, þriðjudaginn 19. mars komu talmeinafræðingar frá Skólaþjónustu Árborgar í heimsókn til okkar og hitti börn fædd árið 2018, 2019 og 2020. Tilgangur heimsóknarinnar var að færa þeim börnum …

Orð eru ævintýri Read More »

Lesa Meira >>

Hinsegin vika Árborgar

23. febrúar, 2024

Hinsegin vika Árborgar verður haldin hátíðleg í þriðja sinn, vikuna 26. febrúar til 1. mars og tökum við í Jötunheimum að sjálfsögðu þátt í þeirri viku. Markmið hinsegin vikunnar er …

Hinsegin vika Árborgar Read More »

Lesa Meira >>

112 dagurinn

13. febrúar, 2024

12 dagurinn er haldinn 11. febrúar ár hvert til að minna á neyðarnúmer allra landsmanna, 112. Þema 112 dagsins í ár er „öryggi á vatni og sjó“. Í tilefni af …

112 dagurinn Read More »

Lesa Meira >>
Fréttasafn

Námsferð Jötunheima 24. – 26. apríl

23. apríl, 2024

Frá og með 24. apríl til og með 26. apríl eru kennarar leikskólans Jötunheima í námsferð í Danmörku og er leikskólinn því lokaður þá daga.

Í Danmörku ætlar hópurinn að skoða þrjá leikskóla ásamt því að fá fræðslu á Hovedbibliotek Kaupmannahafnar. Einnig mun hópurinn fara á námskeið í Jónshúsi um vellíðan í leik og starfi.

Mikil tilhlökkun er  fyrir þessari ferð sem hefur verið lengi í undirbúningi. Það er alltaf gaman að skoða starfsumhverfi annarra leikskóla og leikskólakennara erlendis.

 

Orð eru ævintýri

20. mars, 2024

Í gær, þriðjudaginn 19. mars komu talmeinafræðingar frá Skólaþjónustu Árborgar í heimsókn til okkar og hitti börn fædd árið 2018, 2019 og 2020.

Tilgangur heimsóknarinnar var að færa þeim börnum bókina Orð eru ævintýri sem gefin er út af Menntamálastofnun og Miðju máls og læsis.

Bókin Orð eru ævintýri er litrík og skemmtileg myndaorðabók sem býður upp á mörg tækifæri til að spjalla um orð daglegs lífs og efla orðaforða á fjölbreyttan hátt. Á hverri opnu bókarinnar má einnig finna köttinn Kúra sem gaman er að finna og ræða um hvað hann sé að gera.

Nánari upplýsingar um bókina má finna á heimasíðu Árborgar, hér  og einnig má finna rafræna útgáfu af Orð eru ævintýri auk spila- og kennsluleiðbeininga hér

Þess má geta að allar deildir leikskólans fengu einnig eintak af bókinni og því geta öll börn leikskólans skoðað bókina hér í leikskólanum.

Við þökkum kærlega fyrir þessa góðu gjöf.