Rýmingaræfing Jötunheima 2015

Rýmingaræfing 2015Í morgun komu Guðmundur og Ólafur frá Brunavörnum Árnessýslu og voru með rýmingaræfingu hérna hjá okkur.

 Frá því að kerfið fór í gang og allir voru komnir út liðu rétt tæpar 5 mínútur. Allt gekk mjög vel og allir héldu ró sinni bæði börn og fullorðnir. Þeir hrósuðu okkur fyrir hversu fumlaust allt var.

 Nú vinnum við í að endurmeta rýmingaráætlun skólans og þegar þeirri vinnu er lokið verður hún sett á heimasíðu Jötunheima.