Sérkennsla

Leikskólinn Jötunheimar starfar samkvæmt lögum og aðalnámskrá leikskóla frá 2011 að sérkennslu. Jötunheimar miðar við að lýðræðislegt leikskólastarf byggist á jafnrétti, fjölbreytileika, samábyrgð, samstöðu og viðurkenningu fyrir ólíkum sjónarmiðum. Þar sem allir eiga að vera jafn réttháir og eru þátttakendur í námi sínu og þroska.

Í leiðarljósum um leikskóla kemur fram að starfsfólk leikskóla skuli grípa inni ef þurfa þykir til. Öll börn eiga að njóta bernsku sinnar sem best er á kosið, miðað við þroska og þarfir hvers og eins.

Sérkennslustjóri sér um að skipuleggja sérkennsluna eftir þörfum hvers einstaklings. Gerðar eru einstaklingsnámskrár með öllum börnum sem eru í sérkennslu. Einnig fer fram skráning í dagbók eftir hvern tíma þar sem kemur fram hvað var gert í tímanum og hvernig það hafi gengið. Börnin fá bæði kennslu inn í sérkennsluherbergi og inni á deildum eftir þörfum.

Sérkennslustjóri sér um að boða teymisfundi þar sem foreldrar mæta ásamt teyminu sem er í kringum viðkomandi barn og skrifar fundagerð sem er send til allra sem málið varðar. Sérkennslustjóri er í daglegum samskiptum við deildarstjóra og leikskólastjóra leikskólans til að byggja upp traust net um börnin innan leikskólans.

 

Sérkennslustjóri Jötunheima er;

Eyrún Björk Einarsdóttir eyrunb@arborg.is

480 6386

 

Skólaþjónusta Árborgar

Ráðhúsinu, Austurvegi 2 | 800 Selfoss
mánudaga - föstudaga kl. 9:00 - 16:00
480 1900
skolathjonusta@arborg.is

Skólaþjónusta Árborgar er sérfræðiþjónustu við leik- og grunnskóla í sveitarfélaginu. Leiðarljós skólaþjónustunnar er að þjóna fjölbreyttum þörfum barna, foreldra og starfsfólks. Þjónustan fer að mestu fram í skólunum en starfsfólkið hefur skrifstofu- og fundaraðstöðu í Ráðhúsi Árborgar. Mikil áhersla er lögð á samstarf ýmissa ráðgjafa og fagaðila sem koma að þjónustu við börnin í Árborg.