Leikskólataskan

Það er markmið okkar hér í leikskólanum að börnunum líði sem best í leik og starfi, inni og úti.

Til þess að þeim líði vel er nauðsynlegt að klæðnaður þeirra sé þægilegur og uppfylli þær kröfur að barninu sé hlýtt, það sé þurrt og fötin hefti það ekki við leik.

Útiföt

Útiföt þurfa að vera þægileg og helst þannig að barnið geti hjálpað sér sem mest sjálft.
Á suðurlandi er allra veðra von þannig að það er nauðsynlegt að hafa föt við hæfi í leikskólanum.

Hér er listi yfir það sem við teljum að nauðsynlegt sé að hafa í útifatahólfi barnsins.

Útiföt

  • Pollagalli
  • Kuldagalli
  • Hlý peysa
  • Hlýjar buxur
  • Húfa
  • Ullarsokkar
  • 2 -3 pör af vettlingum
  • Kuldaskór yfir vetrartímann
  • Vaðstígvél
  • Léttir skór yfir sumartímann
  • Létt húfa eða buff yfir sumartímann

Munið að merkja fötin vel leikskólabarninu

 

 Leikskólinn á engin aukaföt, hvorki útiföt né inniföt til að lána börnum

Inniföt
Í lok dags