Skólaheimsókn í Vallaskóla og Sunnlækjarskóla
Undanfarnar vikur hefur elsti árgangur Jötunheima eða börn fædd 2010 farið í heimsókn í báða grunnskóla bæjarins. Föstudaginn 12. febrúar síðastliðinn var Vallaskóli heimsóttur og þriðjudaginn 16. febrúar lá svo leiðin í Sunnlækjarskóla. Í heimsóknunum fengu krakkarnir að fara í skoðunarferð um skólana, kíkja í kennslustundir, hitta nemendur og starfsfólk og leika sér í skólavistun. Krakkarnir skemmtu sér mjög vel og margt skemmtilegt að sjá og upplifa. Meðfylgjandi myndir voru teknar í heimsóknunum.