Í morgun kom björgunarsveitahundurinn Breki og þjálfarinn hans hún Hafdís í heimsókn til okkar í Jötunheima. Hafdís sagði okkur frá Breka en hann er þjálfaður sem leitarhundur og er á útkallslista björgunarsveitanna. Nokkrir krakkar fengu að fela sig og láta Breka leita af þeim sem vakti mikla lukku meðal áhorfenda. Hann sýndi einnig ýmsar listir. Í lokin fengum við síðan öll að kasta boltanum hans og láta hann sækja. Takk kærlega fyrir komuna og við vonum að við munum fá ykkur aftur í heimsókn í Jötunheima. Við látum nokkrar myndir fylgja með fréttinni.
![Jóhann Hlynur og Eva Sól fengu að fela sig](https://jotunheimar.arborg.is/wp-content/uploads/2016/08/Björgunarsveitahundur-048-300x224.jpg)
![Einar Ben og Erla Björt fengu að fela sig](https://jotunheimar.arborg.is/wp-content/uploads/2016/08/Björgunarsveitahundur-051-300x224.jpg)
![Breki að sýna listir sínar](https://jotunheimar.arborg.is/wp-content/uploads/2016/08/Björgunarsveitahundur-057-224x300.jpg)
![Þetta er Breki](https://jotunheimar.arborg.is/wp-content/uploads/2016/08/Björgunarsveitahundur-086-238x300.jpg)