Lubbafréttir

Þann 28. ágúst síðast liðinn var haldið námskeiðið Málið á flug með Lubba á Grand hótel í Reykjavík. Að námskeiðinu stóðu höfundar námsefnisins Lubbi finnur málbein, þær Eyrún Ísfold Gísladóttir og Þóra Másdóttir. Þar komu saman aðilar sem standa að læsi barna, kennarar, talmeinafræðingar og foreldrar. Þar var fjallað um fjölbreytta vinnu með málhljóð og læsi með börnum þar sem námsefnið með Lubba var í aðalhlutverki.

Þær Katrín Þorvaldsdóttir og Þórdís Guðrún Magnúsdóttir leikskólakennarar í Jötunheimum héldu fyrirlestur um hvernig unnið er með Lubbanámsefnið hjá okkur og stóðu sig með mikilli prýði. Þær sýndu í máli og myndum hvernig notkun námsefnisins hefur þróast á þeim árum sem það hefur verið notað hér. Það var byrjað smátt, aðeins á einni deild og þegar við sáum hversu vel efnið höfðaði til barnanna var ákveðið að þróa það á öllum yngri deildunum. Á síðasta skólaári var farið að nota námsefnið á öllum deildum og það útfært eftir aldri og áhuga barnanna.

Nokkrum dögum eftir námskeiðið hafði annar höfundur námsefnisins um Lubba samband við þær stöllur og veittu þeim og Jötunheimum hvatningarverðlaun Lubba þar sem fyrirlestur þeirra var til fyrirmyndar og sýndi vel hvernig hægt er að vinna með námsefnið í leikskólum. Í verðlaun fékk leikskólinn allar hljóðasmiðjur Lubba sem gefnar voru út í byrjun þessa árs.

Við erum afskaplega stolt af því starfi sem unnið er í leikskólanum á sviði málörvunar og læsis sem og öllum öðrum þáttum skólastarfsins.

12027739_10153584293247243_912062427294303771_n

Hér tekur Þórdís Guðrún Magnúsdóttir, fyrir hönd Jötunheima, við  hljóðasmiðjum Lubba frá Eyrúnu Ísfold Gísladóttur.