Á haustmánuðum 2015 var tekin sú ákvörðun, á samstarfsfundi starfsfólks skólaþjónustu og leikskólastjóra, að á árinu 2016 yrði skimunartækjum í leikskólum Árborgar fjölgað með því að taka í notkun málþroskaprófið Orðaskil. Höfundur þess er Elín Þöll Þórðardóttir, talmeinafræðingur.
Málþroskaprófið byggir á orðaforðagátlista fyrir börn á aldrinum eins og hálfs til þriggja ára. Prófinu er ætlað að mæla orðaforða barna svo og hvort þau hafa náð valdi á beygingarkerfi og setningagerð. Skólar og skólaþjónusta í Árborg leggja áherslu á snemmtækt mat á stöðu barna með aukinni notkun skimunartækja í leik– og grunnskólum og skipuleggja sem fyrst viðeigandi þjálfun og kennslu út frá niðurstöðum skimunarprófa. Þegar er byrjað að leggja Orðaskil fyrir og áætlað er að það verði gert einu sinni á leikskólagöngu barns á bilinu 2,9 ára til 3,0 ára. Ef barn mælist einu staðalfráviki eða meira frá meðaltali í orðaforða eða setningagerð jafnaldra er veitt viðeigandi íhlutun. Farið verður yfir niðurstöður í foreldraviðtölum.