Samfélagslöggan í heimsókn

Föstudaginn 25. október fengum við góða heimsókn í leikskólann okkar. Hingað komu tvær lögreglukonur ásamt honum Lúlla löggubangsa. Við fengum að hlusta á söguna um hann Lúlla og lærðum mikið af henni og má þar nefna umferðareglurnar, samfélagsreglur og hvert hlutverk lögreglunnar og annarra viðbragðsaðila er.

Börn fædd 2021 – 2023 fengu fræðslu um notkun endurskinsmerkja og mikilvægi þeirra. Börnunum bauðst að spyrja lögreglukonurnar spurninga og voru þau helst áhugasöm um að vita hvort þær hefðu komið á löggubílnum. Í lok heimsóknarinnar fengu börnin endurskinsmerki frá foreldrafélagi Jötunheima.

Börn fædd 2019 – 2020 fengu að hlusta á söguna um hann Lúlla og lærðum mikið af henni og má þar nefna umferðareglurnar, samfélagsreglur og hvert hlutverk lögreglunnar og annarra viðbragðsaðila er. Í lok heimsóknarinnar fengu börnin  við endurskinsmerki frá foreldrafélaginu og litabók frá lögreglunni.

Við þökkum samfélagslöggunni kærlega fyrir að koma og fræða okkur um notkun endurskinsmerkja og umferðarreglurnar. Jafnframt þökkum við foreldrafélagi Jötunheima fyrir endurskinsmerkin en þau koma sér vel í skammdeginu.