Laugardaginn 8. september fagnar leikskólinn Jötunheimar 10 ára afmæli sínu.
Í tilefni þess var opið hús í leikskólanum föstudaginn 7. september frá klukkan 9.00-11:00 og 13:00-15:30.
Börnin tóku virkan þátt í að undirbúa afmæli leikskólans meðal annars með því að túlka upplifun sína í máli og myndum.
Við þökkum kærlega fyrir þær gjafir sem okkur bárust. Margt var um manninn og þökkum við þeim kærlega fyrir komuna.
Kveðja, starfsfólk Jötunheima