Leikskólinn Jötunheimar er eins og margir vita Heilsueflandi leikskóli. Starfsfólkið verður sífellt meðvitaðra um mikilvægi þess að rækta líkama og sál og einn liður í því er stofnun gönguhóps. Hópurinn heitir Gustur og hefur verið duglegur að fara í göngur bæði innan sveitarfélagsins sem utan.
Hér eru dæmi um nokkrar göngur: Heilsustígurinn í Hveragerði, Laugardælahringurinn, Reykjadalurinn, Kögunarhóll, Silfurbergið, Gömlu kambarnir.
Þann 15.júní s.l. fór gönguhópurinn Gustur í göngu yfir Fimmvörðuháls. Leiðin liggur á milli tveggja jökla, Eyjafjallajökuls og Mýrdalsjökuls og tengir Skóga við Þórsmörk. Hópurinn fékk hið fullkomna gönguveður, skýjað, milt og gott útsýni. Einnig var gengið upp á Magna og Móða sem mynduðust í eldgosinu vorið 2010. Ferðin gekk vel og nutu ferðalangarnir dagsins í magnaðri náttúru.