Fimmtudaginn 27. maí fóru elstu börnin í Jötunheimum í útskriftarferð. Lagt var af stað frá leikskólanum kl. 9.30 árdegis og
gengið sem leið liggur yfir Ölfusárbrú og í Hellisskóg. Þar var hlaupið og leikið lengi dags, grillaðar pylsur og borðað nesti og komið aftur gangandi í Jötunheima um kl. 16.00. Þetta var löng og ströng ganga í frábæru veðri, áð annað slagið til að drekka og borða seríos og rúsínur og þá voru leikin leikrit og sprellað. En allir, bæði börn og fullorðnir, komu heim með roða í vöngum, þreyttir en alsælir.