Hreyfihringur Jötunheima

Leikskólinn Jötunheimar á Selfossi er heilsueflandi leikskóli. Markmið skólans er að stuðla að bættri heilsu og líðan allra þeirra sem í skólanum starfa, hafa heilsuhvetjandi áhrif á umhverfi sitt og skapa aðstæður sem stuðla að heilbrigðum lífsháttum.

Í Jötunheimum var ákveðið að setja upp hreyfihring á útisvæðinu til að auka fjölbreytni og hvetja til aukinnar hreyfingar. Hreyfihringurinn samanstendur af nokkrum æfingum sem hægt er að framkvæma á mismunandi stöðum á leikskólalóðinni. Hönnuð voru spjöld sem sýna mismunandi æfingar og þau hengd upp á kofavegginn sýnileg fyrir stóra og smáa.

Ásamt hreyfihringnum voru ýmsar þrautir málaðar á stéttina sem ýta undir leikgleði og fjölbreytta hreyfingu.

Tilvalið er fyrir börn og fullorðna að kíkja á leikskólalóðina eftir lokun og spreyta sig á æfingunum. Nærandi samvera fyrir líkama og sál.

Með kveðju frá Heilsuteymi Jötunheima.