Leikskólinn Jötunheimar auglýsir eftir aðstoðarleikskólastjóra frá og með 1. júní 2019 eða eftir nánara samkomulagi.
Helstu verkefni
- Vinnur ásamt leikskólastjóra að daglegri stjórnun og rekstri leikskólans sem og skipulagningu uppeldisstarfsins.
- Er staðgengill í fjarveru leikskólastjóra og starfar þá samkvæmt starfslýsingu hans.
- Er faglegur leiðtogi og ber að kynna sér nýjungar í starfi og miðla þekkingu til starfsmanna.
- Skipuleggur og ber ábyrgð á að undirbúningstímar starfsmanna séu notaðir til skipulags á leikskólastarfinu.
- Starfar samkvæmt stefnumörkun leikskólans sem tekur meðal annars mið af menntastefnu Sveitarfélagsins Árborgar, aðalnámskrá leikskóla, lögum og reglugerðum um leikskóla og öðrum lögum er við eiga.
- Sinnir þeim verkefnum er varða stjórnun og uppeldi og menntun leikskólabarna sem yfirmaður felur honum.
Kröfur um menntun, kunnáttu, reynslu og/eða hæfni
- Leyfisbréf leikskólakennara.
- Reynsla, hæfni og áhugi í starfi með börnum.
- Reynsla og/eða menntun í stjórnun æskileg.
- Góð færni í mannlegum samskiptum.
- Jákvæðni, frumkvæði, áhugasemi og góður samstarfsvilji.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Færni til að tjá sig í ræðu og riti.
- Góð íslenskukunnátta.
- Góð tölvukunnátta.
Frekari upplýsingar veitir Júlíana Tyrfingsdóttir, leikskólastjóri, sími: 480-6372. Netfang: julianat@arborg.is
Smelltu hér til að sækja um starfið eða á www.arborg.is
Umsóknarfrestur er til 12. apríl 2019. Störfin
henta jafnt konum sem körlum. Laun fara eftir kjarasamningi Launanefndar
sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Hægt er að kynna sér leikskólastarfið á
heimasíðu Jötunheima: https://jotunheimar.arborg.is/