Leikskólinn Jötunheimar auglýsir eftirfarandi stöður lausar til umsóknar
Deildarstjóri Jötunheimar auglýsir eftir deildarstjóra í 100% starfshlutfall frá og með 10. ágúst 2017.
Menntun og hæfniskröfur:
- Leikskólakennaramenntun
- góð íslensku kunnátta
- áhugi, reynsla og hæfni í starfi með börnum
- góðir skipulagshæfileikar
- jákvæðni, frumkvæði og góður samstarfsvilji
- góð færni í mannlegum samskiptum
- sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- færni til að tjá sig í ræðu og riti
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla og skólastefnu Árborgar
- Tekur þátt í gerð skólanámskrár, ársáætlunar, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra.
- Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati starfsins á deildinni
- Annast daglega verkstjórn á deildinni og ber ábyrgð á að miðla upplýsingum innan deildarinnar, milli deilda leikskólans og milli leikskólastjóra og deildarinnar.
- Ber ábyrgð á og stýrir deildarfundum og skipuleggur undirbúningstíma starfsfólks deildarinnar.
- Hefur umsjón með móttöku, þjálfun og leiðsögn nýrra starfsmanna deildarinnar.
- Fylgist með að deildin sé búin nauðsynlegum uppeldis- og kennslugögnum í samvinnu við leikskólastjóra.
- Ber ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá og ársáætlun leikskólans á deildinni.
- Tryggir að sérhvert barn á deildinni fái kennslu, leiðsögn, umönnun og/eða sérkennslu eftir þörfum.
- Ber ábyrgð á að meðferðaráætlunum sérfræðinga vegna einstakra barna sé framfylgt.
- Skipuleggur samvinnu við foreldra/forráðamenn barnanna á deildinni s.s. aðlögun, dagleg samskipti og foreldraviðtöl.
- Ber ábyrgð á að foreldrar/forráðamenn fái upplýsingar um þroska og líðan barnsins og þá starfsemi er fram fer á deildinni og ekki varðar trúnað gagnvart öðrum börnum og foreldrum/forráðamönnum þeirra.
- Situr foreldrafundi, sem haldnir eru á vegum leikskólans.
- Ber ábyrgð á að leitað sé samþykkis foreldra/forráðamanna barns, áður en leitað er aðstoðar annarra sérfræðinga.
- Skipuleggur samvinnu við ýmsar stofnanir og sérfræðinga sem tengjast leikskólanum í samráði við leikskólastjóra.
- Situr starfsmannafundi, deildarstjórafundi og aðra fundi er yfirmaður segir til um og varðar starfsemi leikskólans.
- Sinnir þeim verkefnum er varða uppeldi og menntun barnanna og stjórnun deildarinnar sem yfirmaður felur honum.
Leikskólakennarar Jötunheimar auglýsa eftir leikskólakennurum í 100% starfshlutfall frá og með 10. ágúst 2017.
Menntun og færnikröfur:
- Leikskólakennararéttindi
- góð íslensku kunnátta
- áhugi, reynsla og hæfni í starfi með börnum
- góðir skipulagshæfileikar
- jákvæðni, frumkvæði og góður samstarfsvilji
- góð færni í mannlegum samskiptum
- sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- færni til að tjá sig í ræðu og riti
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla og skólastefnu Árborgar.
- Vinnur að uppeldi og menntun barnanna. Fylgist vel með velferð þeirra og hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.
- Tekur þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra.
- Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra.
- Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna.
- Situr foreldrafundi, sem haldnir eru á vegum leikskólans.
- Tekur þátt í samstarfi við ýmsar stofnanir og sérfræðinga sem tengjast leikskólanum í samráði við deildarstjóra.
- Situr starfsmannafundi og aðra fundi er yfirmaður segir til um og varðar starfsemi leikskólans.
- Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum.
Umsóknarfrestur er til 15. apríl 2017. Jötunheimar: https://jotunheimar.arborg.is/
Frekari upplýsingar veitir: Júlíana Tyrfingsdóttir leikskólastjóri Jötunheima, sími 480-6372, netfang: julianat@arborg.is
Störfin henta jafnt körlum sem konum og launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.