Lúlli löggubangsi heimsækir elsta árganginn

Föstudaginn 25. september fékk elsti árgangurinn okkar góða heimsókn í leikskólann okkar. Hingað komu tvær lögreglukonur ásamt honum Lúlla löggubangsa. Börnin fengu að heyra söguna um hann Lúlla og lærðum mikið af henni og má þar nefna umferðareglurnar, samfélagsreglur og hvert hlutverk lögreglunnar og annarra viðbragðsaðila er.

 

Við þökkum samfélagslöggunni og Lúlla löggubangsa kærlega fyrir þessa góðu heimsókn