Senn líður að lokum starfsársins og er við hæfi að líta yfir viðburðaríka og skemmtilega síðustu vor mánuði. Skólastarfið hefur verið einstaklega fjölbreytt og lærdómsríkt og höfum við átt dásamlegar stundir með yndislegu börnunum okkar.
Í maí vorum við með umhverfisviku og tókst hún vel til. Börnin sýndu umhverfinu mikla alúð, söfnuðu rusli í nærumhverfinu og gróðursettu fræ sem þau fylgjast spennt með spretta. Einna mesta lukku vakti þó þegar við fengum maura í heimsókn, sem skapaði mikla forvitni og skemmtilegar umræður.
Starfsfólk nýtti skipulagsdaginn þann 15. maí til að sækja innblástur; við heimsóttum leikskólana í Þorlákshöfn og Rauðhól í Reykjavík, auk þess að hlýða á áhugaverðan fyrirlestur um mikilvægi hæglætis í leikskólastarfi.
Í júní tók við spennandi hreystivika þar sem lögð var enn meiri áhersla á hreyfingu, hreyfisöngva og gönguferðir. Íþróttadagurinn heppnaðist frábærlega, en þrír elstu árgangarnir fóru í Kappahlhraunshöllina og tveir yngri árgangarnir skemmtu sér í íþróttasalnum í Stekkjaskóla. Einnig héldum við skemmtilegan hjóladag þar sem samfélagslögreglan kom í heimsókn, skoðaði hjólin með börnunum og gaf þeim límmiða.
í byrjun júní fóru Brunavarnir Árnessýslu yfir öryggismál með okkur í árlegri rýmingaræfingu og gekk hún ótrúlega vel, bæði í Heiðarstekk og í Norðurhólum.
Stærstu stundirnar voru þó útskrift elstu barnanna okkar, sem við kveðjum með miklu stolti og sumarhátíðið sem fór fram á útisvæðinu við Stekkjaskóla. Þar skemmtu börnin sér konunglega með Íþróttaálfinum og Sollu stirðu, skoðuðu tæki frá Björgunarsveitinni Björg og gæddu sér á góðri hressingu.
Það fylgir líka vorinu að fá gesti, og hafa börnin tekið einstaklega vel á móti þeim fjölmörgum leikskólum sem hafa sótt okkur heim og sýnt þeim stolt þau verkefni sem þau vinna að.
Nú fer að líða að sumarfríi leikskólans. Við minnum á að síðasti dagurinn fyrir frí er miðvikudagurinn 1. júlí og verður opið til kl. 13:00 þann dag.
Leikskólinn opnar aftur eftir sumarfrí fimmtudaginn 6. ágúst kl. 13:00.

