Nú eru þær breytingar að verða hér í leikskólanum að leikskólastjórinn okkar, hún Helga Geirmundsdóttir lætur af störfum þann 1. maí n.k. Í hennar stað hefur verið ráðin Júlíana Tyrfingsdóttir en hún hefur undanfarin ár verið leikskólastjóri í Álfaborg í Biskupstungum. Við kveðjum Helgu með söknuði og hlökkum til að vinna með Júlíönu. Óskum þeim báðum velfarnaðar á nýjum vettvangi.
Júlíana Tyrfingsdóttir Helga Geirmundsdóttir