Tvær stöður deildarstjóra

Leikskólinn Jötunheimar óskar eftir að ráða í tvær stöður deildarstjóra frá og með 5. ágúst 2015. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingum sem eru tilbúnir til að taka þátt og leiða áfram gott faglegt starf í skólanum.

Menntun og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennararéttindi áskilin.
  • Sýni jákvæðni, frumkvæði og samstarfsvilja.
  • Hafi áhuga og/eða reynslu til að leiða þróunarstarf.
  • Góð færni í mannlegum samskiptum.
  • Áhugi og hæfni í starfi með börnum.
  • Góðir skipulagshæfileikar.
  • Færni til að tjá sig í ræðu og riti.

Meginverkefni:

  • Vinnur samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra að uppeldi og menntun leikskólabarna.
  • Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfs undir stjórn leikskólastjóra.

Frekari upplýsingar veitir Júlíana Tyrfingsdóttir, sími 480 6372 og áhugasamir geta sent umsóknir á netfangið julianat@arborg.is.

Umsóknarfrestur er til 20. maí 2015.

Starfið hentar jafnt körlum sem konum og launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.