Verklag vegna afsláttar á leikskólagjöldum
Afsláttur til einstæðra foreldra
Afsláttur er veittur að fenginni umsókn. Umsókn skal endurnýjuð árlega, fyrir 15. ágúst og afhent leikskólastjóra í viðkomandi leikskóla.
Umsóknareyðublöð eru hjá leikskólastjóra eða deildarstjóra.
- Foreldri sem greiðir námsgjald sem einstætt foreldri þarf að vera skráður einstæður í þjóðskrá.
- Sveitarfélagið Árborg getur óskað eftir frekari staðfestingu á því að foreldrar séu einstæðir, s.s. að þeir undirriti staðfestingu þess efnis.
- Ef foreldrar skilja/slíta sambúð þarf að skila leikskólastjóra staðfestingu frá sýslumanni þess efnis.
- Afsláttur reiknast frá 1. degi næsta mánaðar eftir að staðfesting hefur borist leikskólastjóra. Afsláttur sem veittur er á grundvelli rangra eða villandi upplýsinga er endurkræfur samkvæmt almennum reglum kröfuréttar og verða hlutaðeigandi krafðir um mismuninn.
- Afsláttur er ekki veittur afturvirkt.
( Reglur um leikskóla í Árborg 1. janúar 2017)