Gleðilega páska
Við óskum ykkur öllum gleðilegra páska 🙂
Kæru börn og foreldrar/forráðamenn. Í nóvember fór fram ytra mat á vegum Menntamálastofnunar og búið er að gefa út skýrslu með niðurstöðunum. Í bréfi sem barst frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu segir: „Mennta- og menningarmálaráðuneytið fagnar niðurstöðum ytra matsins en að mati matsmanna er skólastarf í Jötunheimum til fyrirmyndar.“ Á heimasíðu leikskólans er búið að setja
Ytra mat – skýrsla Menntamálastofnunar Read More »
Búið er að gefa út áfangaskýrslu þróunarverkefnisins „Við erum eins og samfélag“ – Uppbygging lærdómssamfélags í Jötunheimum. Hana er að finna undir flipanum merktum þróunarverkefninu sem og hér. Áfangaskýrsla.
Áfangaskýrsla þróunarverkefnisins. Read More »
Dagur leikskólans verður haldinn hátíðlegur hér í Jötunheimum þriðjudaginn 6. febrúar 2018. Þetta er í 11. skipti sem haldið er upp á dag leikskólans en 6. febrúar árið 1950 stofnuð frumkvöðlar leikskólakennara sín fyrstu samtök. Af því tilefni verður opið hús í leikskólanum Jötunheimum frá klukkan 9:30-11:30 og 13:00-15:00. Í salnum ætlum við að vera með
Dagur leikskólans, 6. febrúar 2018 Read More »
Sumarleyfi í Jötunheimum 2018 Samþykkt var á fræðslunefndarfundi 12. apríl 2017 að sumarleyfi í leikskólum Árborgar 2018 væru frá og með 5. júlí til og með 8. ágúst 2018. Við opnum aftur fimmtudaginn 9. ágúst 2018.
Sumarleyfi í Jötunheimum 2018 Read More »
Við óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Bestu þakkir fyrir ánægjulegt samstarf á liðnu ári. Megi komandi ár verða farsælt og gjöfult í leik og starfi. Hafið það gott um jól og áramót. Jólakveðja Starfsfólk Jötunheima
Á morgun verða litlu jólin hjá okkur í Jötunheimum. Í hádegismat fáum við jólamat að borða og jólaböllin byrja síðan klukkan 13:15 hjá eldri deildunum og 14:15 hjá yngri deildunum.
Kæru foreldrar/forráðamenn Á 41. fundi bæjarstjórnar, 13. desember 2017, var samþykkt að breyta gjaldskrá fyrir leikskóla, mat í leikskólum, skólavistun og skólamat í grunnskólum frá og með 1. janúar 2018. Gjaldskráin verður aðgengileg á heimasíðu Árborgar, heimasíðu leikskólans og í forstofum leikskólans um áramót. Við viljum einnig minna á að ef foreldrar/forráðamenn óski eftir að
Gjaldskrárbreytingar Read More »
Sæl öll, við í Jötunheimum erum nú formlega orðin þátttakendur í verkefninu um Heilsueflandi leikskóla. Heilsueflandi leikskóla á vegum Embættis landlæknis er ætlað að styðja leikskóla í að vinna markvisst að heilsueflingu og gera hana að hluta af daglegu starfi leikskólans. Í Aðalnámskrá leikskóla frá 2011 eru heilbrigði og velferð skilgreind sem einn af sex grunnþáttum menntunar sem leikskólar
Heilsueflandi leikskóli Read More »
Stýrihópur er nú að vinna að endurskoðun skólastefnu Sveitarfélagsins Árborgar. Mikilvægur hluti þeirrar vinnu er að fá hugmyndir frá sem flestum úr skólasamfélaginu. Þegar hefur læsisstefna verið gefin út sem er mikilvægur hluti skólastefnunnar, hugarflugsfundurvar haldinn með nemendum síðastliðið vor og ábendingavefur hefur verið opnaður á heimasíðu Árborgar. Næsti hugarflugsfundur verður haldinn í Sunnulækjarskóla miðvikudaginn 22. nóvember 2017 kl. 17:30-19:30.
Endurskoðun skólastefnu Sveitarfélagsins Árborgar Read More »