Dagur leikskólans 6. febrúar 2023

Í dag, 6. febrúar, er Dagur leikskólans og af því tilefni fóru allir nemendur og kennarar leikskólans í skrúðgöngu.

Sjötti febrúar á langa og merkilega sögu því á þessum degi árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara sín fyrstu samtök. Markmiðið með Degi leikskólans er að stuðla að jákvæðri umræðu um leikskólastarf og um leið beina athygli samfélagsins að því faglega og metnaðarfulla starfi sem innt er af hendi í leikskólum landsins á degi hverjum.

Einkunnarorð dagsins hafa verið frá upphafi „Við bjóðum góðan dag – alla daga“.