Fréttasafn
Nú þegar farið er að skyggja úti er rétt að minna á mikilvægi endurskinsmerkja. Í myrkri sjást óvarðir vegfarandir, gangandi og hjólandi, illa þrátt fyrir götulýsingu og ökuljós bifreiða. Þar …
Lesa Meira >>Í gær, þriðjudaginn 19. mars komu talmeinafræðingar frá Skólaþjónustu Árborgar í heimsókn til okkar og hitti börn fædd árið 2018, 2019 og 2020. Tilgangur heimsóknarinnar var að færa þeim börnum …
Lesa Meira >>Hinsegin vika Árborgar verður haldin hátíðleg í þriðja sinn, vikuna 26. febrúar til 1. mars og tökum við í Jötunheimum að sjálfsögðu þátt í þeirri viku. Markmið hinsegin vikunnar er …
Hinsegin vika Árborgar Read More »
Lesa Meira >>12 dagurinn er haldinn 11. febrúar ár hvert til að minna á neyðarnúmer allra landsmanna, 112. Þema 112 dagsins í ár er „öryggi á vatni og sjó“. Í tilefni af …
Lesa Meira >>Fréttasafn
Frá og með 24. apríl til og með 26. apríl eru kennarar leikskólans Jötunheima í námsferð í Danmörku og er leikskólinn því lokaður þá daga.
Í Danmörku ætlar hópurinn að skoða þrjá leikskóla ásamt því að fá fræðslu á Hovedbibliotek Kaupmannahafnar. Einnig mun hópurinn fara á námskeið í Jónshúsi um vellíðan í leik og starfi.
Mikil tilhlökkun er fyrir þessari ferð sem hefur verið lengi í undirbúningi. Það er alltaf gaman að skoða starfsumhverfi annarra leikskóla og leikskólakennara erlendis.
Í gær, þriðjudaginn 19. mars komu talmeinafræðingar frá Skólaþjónustu Árborgar í heimsókn til okkar og hitti börn fædd árið 2018, 2019 og 2020.
Tilgangur heimsóknarinnar var að færa þeim börnum bókina Orð eru ævintýri sem gefin er út af Menntamálastofnun og Miðju máls og læsis.
Bókin Orð eru ævintýri er litrík og skemmtileg myndaorðabók sem býður upp á mörg tækifæri til að spjalla um orð daglegs lífs og efla orðaforða á fjölbreyttan hátt. Á hverri opnu bókarinnar má einnig finna köttinn Kúra sem gaman er að finna og ræða um hvað hann sé að gera.
Nánari upplýsingar um bókina má finna á heimasíðu Árborgar, hér og einnig má finna rafræna útgáfu af Orð eru ævintýri auk spila- og kennsluleiðbeininga hér
Þess má geta að allar deildir leikskólans fengu einnig eintak af bókinni og því geta öll börn leikskólans skoðað bókina hér í leikskólanum.
Við þökkum kærlega fyrir þessa góðu gjöf.