Ingunn Helgadóttir

Vorið og skólalok

Senn líður að lokum starfsársins og er við hæfi að líta yfir viðburðaríka og skemmtilega síðustu vor mánuði. Skólastarfið hefur verið einstaklega fjölbreytt og lærdómsríkt og höfum við átt dásamlegar stundir með yndislegu börnunum okkar. Í maí vorum við með umhverfisviku og tókst hún vel til. Börnin sýndu umhverfinu mikla alúð, söfnuðu rusli í nærumhverfinu […]

Vorið og skólalok Read More »

Læsisstefna Árborgar – Læsi til lífs og leiks

Læsisstefna Árborgar var gefin út á Fræðsludegi Árborgar, 21. ágúst síðast liðinn. Læsisstefnan ber heitið Læsi til lífs og leiks, er ein af undirstefnum Menntastefnu Árborgar og gildir til ársins 2030. Stefnan byggir á: Gildandi aðalnámskrám leik- og grunnskóla Þemahefti frístundaheimila Barnasáttmála Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Læsisstefnan er afrakstur þverfaglegrar vinnu fulltrúa leik- og grunnskóla, frístundastofnana og

Læsisstefna Árborgar – Læsi til lífs og leiks Read More »

Ritrýnd fræðigrein um þróunarverkefni leikskólanna í Árborg

Á síðasta skólaári tóku leikskólarnir í Árborg þátt í þróunarverkefni sem styrkt var af Sprotasjóði og fjallaði um félags- og tilfinningahæfni barna. Tveir rannsakendur frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands komu að þróunarverkefninu og tóku þeir meðal annars rýnihópaviðtöl í upphafi og lok þróunarverkefnisins. Félags- og tilfinningahæfni barna er mikilvægur þáttur í menntun leikskólabarna og undirstaða frekara

Ritrýnd fræðigrein um þróunarverkefni leikskólanna í Árborg Read More »

Samfélagslöggan í heimsókn

Föstudaginn 25. október fengum við góða heimsókn í leikskólann okkar. Hingað komu tvær lögreglukonur ásamt honum Lúlla löggubangsa. Við fengum að hlusta á söguna um hann Lúlla og lærðum mikið af henni og má þar nefna umferðareglurnar, samfélagsreglur og hvert hlutverk lögreglunnar og annarra viðbragðsaðila er. Börn fædd 2021 – 2023 fengu fræðslu um notkun

Samfélagslöggan í heimsókn Read More »

Farsæl börn í leikskóla

Síðasta skólaár tók leikskólinn Jötunheimar, ásamt hinum leikskólum Árborgar, þátt í þróunarverkefni sem styrkt var að Sprotasjóði. Markmið verkefnisins er þríþætt og tengist innleiðingu ákvæða laga um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna nr. 86/2021 með áherslu á grunnþjónustu leikskóla í stigskiptri farsældarþjónustu. Vinna að því að byggja upp farsælt samstarf milli foreldra og starfsfólks

Farsæl börn í leikskóla Read More »

Sumarkveðja

Leikskólinn Jötunheimar er lokaður frá og með klukkan 13:00 3. júlí og opum við aftur fimmtudaginn 8. ágúst kl. 13. Um leið og við þökkum fyrir samveruna og samstarfið á skólaárinu sem er að líða óskum við ykkur góðra stunda og samveru í sumarfríinu. Njótið sumarsins kæru foreldrar og börn Sumarkveðja, Starfsfólk Jötunheima.

Sumarkveðja Read More »

Uppeldisnámskeið fyrir verðandi foreldra í Jötunheimum  

Dagana 19. og 20. júní voru haldin uppeldisnámskeið hér í Jötunheimum sem hluti af þróunarverkefni skólaþjónustu Árborgar. Markmið verkefnisins er að skapa vettvang fyrir fræðslu til foreldra við upphaf leikskólagöngu barnanna hér í Jötunheimum og því fyrsti dagur aðlögunar hugsaður sem viðvera á uppeldisnámskeiðinu án barna.  Námskeiðið var haldið fyrir foreldra barna sem eru fædd

Uppeldisnámskeið fyrir verðandi foreldra í Jötunheimum   Read More »

Sumarhátíð 2024

Sumarhátíð leikskólans var haldin hér í Jötunheimum 14. júní síðast liðinn í dásamlegu veðri.   Ýmislegt var hægt að gera fást við og upplifa á hátíðinni, meðal annars kom slökkvibíll frá BÁ og slöngubátur, fjórhjól og björgunarsveitarbíll frá Björgunarsveitinni Björg.   Íþróttaálfurinn og Solla stirða komu í heimsókn, það vakti mikila lukku og dönsuðu og sungu

Sumarhátíð 2024 Read More »