Júlíana Tyrfingsdóttir

Gleðivika 26. – 30. október 2015

Gleðivika Mánudagur: við ætlum að klæða okkur í druslufötin og fá andlitsmálningu í leikskólanum. Þriðjudagur: Bangsadagur, allir mega koma með bangsa í leikskólann. Miðvikudagur: Ball í salnum. Yngri deildir fyrst saman og síðan eldri saman. Fimmtudagur: skiptideildadagur. Fossmúli og Sunnuhvoll munu skipta um deild, Aðalból og Sólbakki, Merkiland og Fagurgerði. Föstudagur: Rugldagur, við getum t.d. …

Gleðivika 26. – 30. október 2015 Read More »

Bleikur dagur í Jötunheimum

Október er mánuður Bleiku slaufunnar og árveknis- og fjáröflunarátaks Krabbameinsfélags Íslands gegn krabbameinum hjá konum. Í Jötunheimum verður bleikur dagur föstudaginn 16. október . Gaman væri að sjá sem flesta í einverju bleiku eða með eitthvað bleikt. Þennan dag verður einnig sameiginleg söngstund í sal klukkan 9:15.

Lubbafréttir

Þann 28. ágúst síðast liðinn var haldið námskeiðið Málið á flug með Lubba á Grand hótel í Reykjavík. Að námskeiðinu stóðu höfundar námsefnisins Lubbi finnur málbein, þær Eyrún Ísfold Gísladóttir og Þóra Másdóttir. Þar komu saman aðilar sem standa að læsi barna, kennarar, talmeinafræðingar og foreldrar. Þar var fjallað um fjölbreytta vinnu með málhljóð og …

Lubbafréttir Read More »

Staða matráðs í Jötunheimum.

Leikskólinn Jötunheimar óskar eftir að ráða vegna forfalla í stöðu matráðs/matreiðslumanns í 87,5% starf í eitt ár. Við leikskólann starfa 135 nemendur og 40 starfsmenn. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem getur hafið störf sem fyrst. Helstu verkefni: Hefur yfirumsjón með eldhúsi og starfar samkvæmt starfslýsingu matráðs í leikskólanum  Hæfniskröfur: Reynsla og þekking á matseld …

Staða matráðs í Jötunheimum. Read More »

Styrkir til skólaþróunarverkefna í Árborg

Á 10. fundi fræðslunefndar, þriðjudaginn 19. júní 2015, var kynning á nokkrum styrkjum sem fara í skólaþróunarverkefni í Árborg. Stærsti styrkurinn er frá Erasmus+ að upphæð 29.040 evrur (4,3 millj. kr) og fer í verkefnið Nám, störf og lærdómssamfélag, sem grunnskólar sveitarfélagsins og skólaþjónusta Árborgar standa saman að. Markmið náms- og þjálfunarverkefna hjá Erasmus+ fyrir starfsfólk …

Styrkir til skólaþróunarverkefna í Árborg Read More »