Starfsdagur 21.febrúar 2017
Leikskólinn verður lokaður þriðjudaginn 21. febrúar vegna starfsdags kennara til klukkan 12:00. Þá opnum við og bjóðum upp á léttan hádegisverð. Dagskrá: Þróunarverkefnið Námsmat á mörkum skólastiga.
Leikskólinn verður lokaður þriðjudaginn 21. febrúar vegna starfsdags kennara til klukkan 12:00. Þá opnum við og bjóðum upp á léttan hádegisverð. Dagskrá: Þróunarverkefnið Námsmat á mörkum skólastiga.
Okkur hefur borist ofsalega góð gjöf frá foreldrafélagi Jötunheima. Þau gáfu okkur stafræna smásjá. Hún mun nýtast okkur vel í skólastarfinu til þess að rannsaka allt milli himins og jarðar. Við getum tengt hana við tölvu og þannig fengið stóra og góða mynd af því sem við erum að skoða. Við getum síðan tengt tölvuna við …
Kæru foreldrar Á 29. fundi bæjarstjórnar, 14. desember 2016, var samþykkt að breyta gjaldskrá fyrir leikskóla, mat í leikskólum, skólavistun og skólamat í grunnskólum frá og með 1. janúar 2017. Gjaldskráin verður aðgengileg á heimasíðu Árborgar um áramót. Um áramótin verður tekið upp nýtt kerfi sem felur í sér að leikskólastjórnendur gera alla reikninga, þeir …
Við óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Bestu þakkir fyrir ánægjulegt samstarf á liðnu ári. Megi komandi ár verða farsælt og gjöfult í leik og starfi. Hafið það gott um jól og áramót. Jólakveðja Starfsfólk Jötunheima
Í dag voru litlu jólin hjá okkur í Jötunheimum. Í hádegismat fengum við ofsalega góðan jólamat að borða. Jólaböllin byrjuðu síðan klukkan 13:15 hjá eldri deildunum og 14:15 hjá yngri deildunum. Á bæði böllin komu fjórir skemmtilegir jólasveinar sem gáfu okkur mandarínur. Hér eru nokkrar myndir frá jólaböllunum.
Í dag var rauður dagur í Jötunheimum fóru allir í „rauða“ jólasöngstund í salnum. Dagurinn endaði síðan á yndislegu foreldrakaffi þar sem við gæddum okkur á smákökum sem börnin höfðu bakað.
Í morgun opnuðum við í Jötunheimum Jólagluggann okkar. Við fengum stafinn D 🙂
Í dag fengum við heimsókn frá Martin Haferkamp sem er þýskur leikskólakennari og er í náms- og kynnisferð hér á Íslandi. Börnin sýndu honum hvernig starfið okkar gengur fyrir sig og var hann ofsalega ánægður.
Degi íslenskrar tungu 2016 var fagnað í leikskólanum á ýmsan hátt en það sem stóð uppúr að mati barnanna var afmæli Lubba. Lubbi okkar varð 5 ára og í tilefni dagsins komu allir saman í lopapeysum inn í sal og sungu nokkur vel valin lög. Hér eru nokkrar myndir frá viðburðinum.
Í dag fengu elstu börnin góða heimsókn frá Brunavörnum Árnessýslu. Þeir sýndu okkur búnaðinn sem slökkvuliðsmenn þurfa að bera og síðan fengum við fræðslu um brunamál. Eftir heimsóknina fengum við viðurkenningarskjöl og hófumst við strax handa við að leysa þrautirnar. Hér er að líta nokkrar myndir frá heimsókninni.