Fréttasafn
Fréttir frá Jötunheimum
Lokað á morgun, 24. febrúar, vegna starfsmannafundar.
Leikskólinn verður lokaður milli 8 og 12 á morgun 24.febrúar. Þá er starfsmannafundur. Opnum aftur klukkan 12 og þá verður boðið uppá hádegismat
Ömmu og afa dagur
Í tilefni af degi leikskólans verður ömmu og afa dagur í leikskólanum Jötunheimum. Öllum ömmum og öfum er boðið að koma í heimsókn og dvelja með barninu í leik og starfi frá 9-11.
6. febrúar – Dagur leikskólans
Dagur leikskólans verður haldinn hátíðlegur í leikskólum landsins þann 6. febrúar. Þetta er í áttunda sinn sem dagurinn er haldinn hátíðlegur en 6. febrúar er merkisdagur í íslenskri leikskólasögu því á þessum degi árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök […]
Starfsmannafundur 24.febrúar 8-12- Leikskólinn lokaður
Leikskólinn verður lokaður milli 8 og 12, 24.febrúar. Þá er starfsmannafundur. Opnum aftur klukkan 12 og þá verður boðið uppá hádegismat.
Þorrablót og svartur dagur
Í dag var Þorrablót í leikskólanum og svartur dagur. Klukkan 10 voru leiksýningar í salnum. Kennarar á eldri deildum leikskólans buðu uppá Fóa og Fóafeykirófa en starfsmenn yngri deilda Gullbrá og birnirnir þrír. Eftir það var sameiginlega söngstund í salnum. […]
2.janúar – Starfsdagur -Lokað
Leikskólinn verður lokaður 2.janúar vegna starfsdags kennara. Sjáumst hress og kát 5 janúar
Gjaldskrárbreytingar um áramót
Á fundi bæjarstjórnar, 10. desember 2014, var samþykkt að breyta gjaldskrá fyrir skólavistun, leikskóla, mat í leikskólum og skólamat í grunnskólum frá og með 1. janúar 2015. Gjald fyrir skólavistun og leikskóla hækkar um 2,7% og matargjaldið hækkar um 3,4%. […]
Jólakveðja
Við óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Bestu þakkir fyrir ánægjulegt samstarf á liðnu ári. Megi komandi ár verða farsælt og gjöfult í leik og starfi. Hafið það gott um jól og áramót. Jólakveðja Starfsfólk Jötunheima.
2.janúar 2015- Leikskólinn er lokaður vegna starfsdags
Leikskólinn verður lokaður 2.janúar vegna starfsdags kennara. Sjáumst hress og kát 5 janúar
Foreldrakaffi
Í dag var foreldrakaffi hjá okkur í Jötunheimum frá 14-15:30. Öll börnin á leikskólanum höfðu bakað nokkrar sortir sem þau buðu foreldrum sínum uppá á sameiginlegu hlaðborði inní salnum okkar. Ofsalega góð mæting og notarleg stund.
Jólaglugginn 10.desember 2014
Við í Jötunheimum opnuðum jólagluggann 10.desember 2014. Við fengum stafin L. Það voru elstu börnin sem sáu um að hanna og búa til gluggann í ár.
