Ingunn Helgadóttir

Dagur leikskólans er haldinn hátíðlegur í leikskólum landsins 6. febrúar ár hvert. Sjötti febrúar er merkilegur dagur í sögu leikskólans því þann dag árið 1950 voru fyrstu sam­tök leik­skóla­kenn­ara stofnuð. Í tilefni þess hefur dagurinn verið haldinn hátíðlegur í leikskólum um land allt til að minna á það faglega og góða starf sem fer þar …

Read More »

Jólaball í Jötunheimum

    Það var hátíðleg stund í Jötunheimum í morgun þegar árlegt jólaball fór fram.  Gengið var í kringum jólatréð á meðan vel valin jólalög ómuðu hvert af öðru.   Stórir og smáir tóku vel undir og voru sér og sínum til sóma.  Að loknum dansi og söng var boðið upp á mandarínur sem runnu ljúflega niður. Í hádeginu var svo dýrindis jólamatur á borðum og ekki annað að sjá en að allir væru að njóta stundarinnar. Takk fyrir dásamlega samveru öll sem eitt.  

Þriðjudaginn 7. nóvember var kynning á YAP hreyfiprógrami í leikskólanum okkar og var þessi YAP kynning var sérstaklega fyrir stjórnendur og starfsfólk leikskóla á Suðurlandi. Markmiðið var að vekja áhuga og fá sem flesta til að vinna með YAP verkefnið í leikskólum Suðurlands. Á kynningunni kynnti Sigurlín J Baldursdóttir, íþróttafræðingur í Jötunheimum sitt starf  og …

Read More »

Endurskinsmerki

Nú þegar farið er að skyggja úti er rétt að minna á mikilvægi endurskinsmerkja. Í myrkri sjást óvarðir vegfarandir, gangandi og hjólandi, illa þrátt fyrir götulýsingu og ökuljós bifreiða. Þar af leiðandi er notkun endurskinsmerkja nauðsynleg. Vegfarendur með endurskinsmerki sjást fimm sinnum fyrr en þeir sem nota ekki endurskinsmerki. Börn sjást verr en fullorðnir vegna …

Endurskinsmerki Read More »

Farsæld barna

Fjölskyldusvið Árborgar gegnir leiðandi hlutverki á landsvísu í samvinnu við Barna-og fjölskyldustofu í að innleiða stigskipta farsældarþjónustu í þágu farsældar barna. Stigskipta farsældarþjónustan byggir á lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna sem tóku gildi sem tóku gildi 1. janúar 2022. Farsældarlögin draga fram mikilvægi þess að verndandi þættir séu til staðar í lífi …

Farsæld barna Read More »

Haustið

Þá er október mánuður tekinn við með öllum sínum haustsjarma Haustið hefur farið vel af stað og erum við að venjast því að hafa tvær starfstöðvar sem gengur ótrúlega vel. Jákvæðni og seigla starfsfólksins hefur þar mikið að segja. Aðlöguð hafa verið 74 ný börn í leikskólann og tók daglegt líf og leikur mið af …

Haustið Read More »

Sumarlokun Jötunheima

Nú fer senn að líða að lokum þessa skólaárs en leikskólinn lokar vegna sumarleyfis miðvikudaginn 5. júlí kl. 13:00. Þetta skólaár hefur verið gjöfult og lærdómsríkt og höfum við séð börnin blómstra og dafna í fjálsum leik og lærdómsríku umhverfi leikskólans. Finna má aukna spennu þessa síðustu daga hjá þeim sem ýmist eru að hefja …

Sumarlokun Jötunheima Read More »

Gjafir frá foreldrafélagi

Í síðustu viku  kom foreldrafélag Jötunheima færandi hendi með gjafir handa leikskólanum. Foreldrafélagið gaf okkur segulkubba, kúlubraut og segulbíla sem er góð viðbót við segulkubbana sem við eigum nú þegar. Við þökkum foreldrafélagi Jötunheima kærlega fyrir góðar gjafir sem munu nýtast okkur í leik og starfi hér í Jötunheimum   Á myndinni má sjá Ástu …

Gjafir frá foreldrafélagi Read More »

Gleði- og tannverndarvika

Vikuna 20. – 24. mars var haldin gleðivika í Jötunheimum. Slík vika er haldin tvisvar sinnum á skólaárinu, í október og mars. Í gleðivikunni leggjum við niður skipulagt starf og gefum frjálsa og sjálfsprottna leiknum góðan tíma. Þessa viku er einnig ýmislegt skemmilegt gert, meðal annars var flæði um allan leikskólann þar sem börnin gátu …

Gleði- og tannverndarvika Read More »