Fréttasafn

Fréttir frá Jötunheimum

4. nóvember, 2016

Kæru börn og foreldrar Leikskólinn verður lokaður fimmtudaginn 17. nóvember  2016 vegna starfsdags. Dagskrá: Fyrirlestur og fræðsla um flogaveiki – Anna Margrét Magnúsdóttir, hjúkrunarfræðingur. Námskeið í Lubba – Eyrún Ísfold, talmeinafræðingur. Trúnaðarmenn FL og FOSS með kynningar fyrir sína félagsmenn. […]

Leikskólinn lokar 13:30 á mánudaginn 24.október 2016

21. október, 2016

Kæru foreldrar og fjölskyldur Jötunheimar verða lokaðir á mánudaginn 24. október 2016 frá kl. 13:30 vegna samstöðufundar á Austurvelli í Reykjavík kl. 15:00. Hér fyrir neðan eru meiri upplýsingar.   KVENNAFRÍ 2016 – KJARAJAFNRÉTTI STRAX! Mánudaginn næstkomandi, þann 24. október […]

Kynningarfundir fyrir foreldra 2016

20. september, 2016

Kynningarfundir fyrir foreldra eru eftirfarandi: 20. september 2016, kl. 8:10 Sólbakki 21. september 2016, kl. 8:10 Fossmúli 22. september 2016, kl. 8:10 Sunnuhvoll 23. september 2016, kl. 8:10 Fagurgerði 27. september 2016, kl. 8:10 Merkiland 29. september 2016, kl. 8:10 […]

Læsissáttmáli – Kynning fyrir foreldra.

30. ágúst, 2016

Kynning fyrir foreldra í Árborg. Fimmtudaginn 1.september kl 18:00 í Vallaskóla. Vilt þú vita hvað þú getur gert til þess að stuðla að bættu læsi barnsins þíns? Vonumst til að sjá sem flesta. Kynning á læsissáttmála fyrir foreldra

Björgunarsveitahundurinn Breki kom í heimsókn

26. ágúst, 2016

Í morgun kom björgunarsveitahundurinn Breki og þjálfarinn hans hún Hafdís í heimsókn til okkar í Jötunheima. Hafdís sagði okkur frá Breka en hann er þjálfaður sem leitarhundur og er á útkallslista björgunarsveitanna. Nokkrir krakkar fengu að fela sig og láta Breka leita […]

Starfsdagur 8:00-12:00 18.ágúst n.k.

5. ágúst, 2016

Leikskólinn verður lokaður fimmtudaginn 18. ágúst vegna starfsdags kennara til klukkan 12:00. Þá opnum við og bjóðum upp á léttan hádegisverð.

Sirkus Íslands

23. júní, 2016

Í morgun kom Sirkus Íslands til okkar í boði foreldrafélagsins. Tveir hressir sirkuslistamenn mættu hingað með glens, grín og ótrúlega flott sirkusbrögð. Börnin voru ótrúlega ánægð með sýninguna. Hér eru nokkrar myndir frá sýningunni.  

Leikskólinn Jötunheimar auglýsir eftirfarandi stöður lausar til umsóknar

28. apríl, 2016

Sérkennslustjóri Leikskólinn Jötunheimar auglýsir eftir sérkennslustjóra í 80% starfshlutfall frá og með 4. ágúst 2016.  Leitað er að áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingi sem er fær um að taka að sér umsjón með sérkennslu, stjórnunarlega ábyrgð og þátttöku í stjórnunarteymi. Meginverkefni: Starfar […]

Elsti árgangur í söngferð

26. apríl, 2016

Elsti árgangur í söngferð Í tilefni af hátíðinni Vor í Árborg fór elsti árgangurinn í Jötunheimum í söngferð um Árborg ásamt nemendum úr fleiri leikskólum. Fyrsti áfangastaður var Sólvellir á Eyrarbakka þar sem sungið var fyrir vistmenn og starfsfólk, síðan lá leiðin á Kumbaravog […]

Orðaskil – málþroskapróf

26. febrúar, 2016

Á haustmánuðum 2015 var tekin sú ákvörðun, á samstarfsfundi starfsfólks skólaþjónustu og leikskólastjóra, að á árinu 2016 yrði skimunartækjum í leikskólum  Árborgar fjölgað með því að taka í  notkun málþroskaprófið Orðaskil. Höfundur þess er  Elín Þöll Þórðardóttir, talmeina­fræðingur.  Málþroska­­prófið byggir […]

Heilsugæslan á Selfossi vill minna foreldra á að panta tíma í þroskaskimun 2 ½ árs og 4 ára barna.

24. febrúar, 2016

Ágætu foreldrar/forráðamenn 2 ½ árs og 4 ára barna Heilsugæslan á Selfossi vill minna ykkur á að panta tíma fyrir börnin ykkar í þroskaskimun. Í þessum skoðunum er lagt mat á vöxt og þroska barnsins og jafnframt er það sjónprófað […]

Skólaheimsókn

23. febrúar, 2016

Skólaheimsókn í Vallaskóla og Sunnlækjarskóla Undanfarnar vikur hefur elsti árgangur Jötunheima eða börn fædd 2010 farið í heimsókn í báða grunnskóla bæjarins. Föstudaginn 12. febrúar síðastliðinn var Vallaskóli heimsóttur og  þriðjudaginn 16. febrúar lá svo leiðin í Sunnlækjarskóla. Í heimsóknunum fengu krakkarnir að fara […]