Fréttir

Jólakveðja

Við óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Bestu þakkir fyrir ánægjulegt samstarf á liðnu ári. Megi komandi ár verða farsælt og gjöfult í leik og starfi.   Jólakveðja, Starfsfólk Jötunheima

Ráðning aðstoðarleikskólastjóra í Jötunheimum

Í desember voru stöður aðstoðarleikskólastjóra Jötunheima auglýstar. Ráðnar hafa verið Ingunn Helgadóttir, sem sinnt hefur stöðu aðstoðarleikskólastjóra síðastliðin tvö ár og Guðrún Hrafnhildur Klemenzdóttir, deildarstjóri á Sólbakka. Þær munu báðar hefja störf um áramótin en Guðrún Hrafnhildur mun jafnframt vera áfram deildarstjóri á Sólbakka fram á vorið.  Við óskum þeim innilega til hamingju með störfin.

Endurskinsmerki frá foreldrafélagi Jötunheima

Í dag fengum við góða heimsókn til okkar í Jötunheima. Í samstarfi við foreldrafélagið komu tveir lögreglumenn til okkar og voru með stutta fræðslu um nauðsyn þess að vera sýnilegur í umferðinni í myrkrinu. Góðar umræður urðu um mikilvægi þess að staðsetja endurskinsmerki á sýnilegum stað á útifötunum okkar. Í kjölfarið gaf foreldrafélag Jötunheima öllum …

Endurskinsmerki frá foreldrafélagi Jötunheima Read More »

YAP í Jötunheimum

Leikskólinn Jötunheimar á Selfossi er kominn í samstarf við Special Olympics á Íslandi og Íþróttasamband fatlaðra við innleiðingu YAP verkefnisins. Sigurlín Jóna Baldursdóttir, íþróttafræðingur sér um hreyfiþjálfun í Jötunheimum. Hún hefur verið að innleiða YAP verkefnið í því hreyfistarf sem fyrir var og er mikilvægt að þar hefur hún notið stuðnings leikskólastjórans, Júlíönu Tyrfingsdóttur. Í febrúar …

YAP í Jötunheimum Read More »

Fræðsludagur leikskólanna í Árborg

Föstudaginn 25. nóvember s.l. var haldinn Fræðsludagur leikskólanna í Árborg og fór hann fram á Stað á Eyrarbakka.   Segja má að einkunnarorð fræðsludagsins hafi veriði vellíðan og farsæld barna sem er okkur jafnan mjög hugleikið í leikskólastarfinu.   Við fengum fyrirlestur frá Hugarfrelsi sem sérhæfir sig í vellíðan barna. Í fyrirlestrinum var farið yfir áhrifaríkar aðferðir …

Fræðsludagur leikskólanna í Árborg Read More »

Afmæli Lubba

Í dag 16. nóvember, á degi íslenskrar tungu, á hann Lubbi okkar afmæli. Afmælið var haldið hátíðlegt í leikskólanum með sameiginlegri söngstund í salnum okkar þar sem sunginn var afmælissöngurinn fyrir Lubba og nokkur vel valin sönglög. Í tilefni dagsins voru allir hvattir til að klæðast lopapeysum því hann Lubbi er alltaf í lopapeysunni sinni. …

Afmæli Lubba Read More »

Logi og Glóð

Fimmtudaginn 10. nóvember fékk elsti árangur leikskólans heimsókn frá tveimur slökkviliðsmönnum Brunavörnum Árnessýslu þar sem þeir kynntu fyrir börnunum forvarnarverkefnið um Loga og Glóð. Slökkviliðsmennirnir ræddu við börnin, fræddu þau um mikilvægi eldvarna og sýndu þeim myndband um Loga og Glóð sem finna má hér https://www.youtube.com/watch?v=nUuH9FPlnwU Miklar og góðar umræður fóru fram meðal barnanna og …

Logi og Glóð Read More »

Foreldrasamvinna  

Foreldrar í teymum leikskólans Það er gaman að sjá samstarf leikskólans og heimilina vaxa og eflast eftir síðustu ár þegar hægja þurfti gríðarlega á þeirri samvinnu.   Alls kyns skemmtileg verkefni eru unnin deildum sem snúa að samvinnu milli heimilis og skóla t.a.m. bókaormur og Lubbi sem fer heim með börnum á Háberg og Miðbergi.  …

Foreldrasamvinna   Read More »

Sumarlokun Jötunheima

Leikskólinn Jötunheimar er lokaður frá og með 6. júlí til og með 3. ágúst 2022. Þetta skólaár hefur verið lærdómsríkt, krefjandi á köflum, en umfram allt gefandi og skemmtilegt. Við erum þakklát fyrir okkar frábæra starfsfólk sem hefur sýnt mikla útsjónarsemi, jákvæðni og áreiðni. Við viljum þakka ykkur foreldrum fyrir samstarfið og skilninginn sem þið …

Sumarlokun Jötunheima Read More »

Hreystivika, leiksýning, hestaheimsókn og gjöf frá foreldrafélagi

Undanfarnar vikur hefur ýmislegt skemmtilegt á daga okkar drifið. Hreystivikan var í síðustu viku og markar hún formleg endalok á skipulagðri hreyfingu skólaárins. Í hreystivikunni fóru öll börn og kennarar leikskólans í Selfosshöllina, tveir elstu árgangarnir á mánudeginum og tveir yngri árgangarnir á föstudeginum. Í Selfosshöllinni var leikið í þrautabraut og frjálst. Í sömu vikunni …

Hreystivika, leiksýning, hestaheimsókn og gjöf frá foreldrafélagi Read More »