Skipulagsdagur 7. september 2021
Kæru foreldrar og forráðamenn Við viljum minna á að vegna skipulagsdagsins 7. september nk. verður leikskólinn Jötunheimar lokaður þann dag. Bestu kveðjur, leikskólastjóri
Kæru foreldrar og forráðamenn Við viljum minna á að vegna skipulagsdagsins 7. september nk. verður leikskólinn Jötunheimar lokaður þann dag. Bestu kveðjur, leikskólastjóri
Um leið og við þökkum fyrir samveruna og samstarfið á skólaárinu sem er að líða óskum við ykkur góðra stunda og samveru í sumarfríinu. Þetta skólaár hefur kennt okkur margt og búum við að þeirri reynslu en við erum jafnframt spennt að geta hafið nýtt skólaár á hefðbundinn hátt. Leikskólinn Jötunheimar er lokaður frá og …
Í dag, 24. júní, kom foreldrafélag Jötunheima færandi hendi með gjafir handa leikskólanum. Foreldrafélagið gáfu okkur segulkubba sem er góð viðbót við segulkubbana sem við eigum nú þegar og gáfu þau okkur einnig Playmo123; flugvélar, dýralest og flugrútu. Við þökkum foreldrafélagi Jötunheima kærlega fyrir góðar gjafir sem munu nýtast okkur í leik og starfi hér …
16. júní síðastliðinn var haldin sumarhátíð hér í Jötunheimum. Foreldrafélag Jötunheima bauð upp á sýningu frá BMX brós og sátu börnin heilluð og fylgdust vel með á meðan þeir sýndu listir sínar á hjólunum. Einnig fengum við heimsókn frá Björgunarsveitinni Björg sem var með tvo björgunarsveitabíla og sexhjól til sýnis. Boðið var upp á andlitsmálningu, …
Mánudaginn 2. nóvember er leikskólinn lokaður vegna skipulagsdags.
Leikskólinn verður lokaður föstudaginn 9. október vegna skipulagsdags. Fyrirhugað var að halda haustþing 8. deildar Félags Leikskólakennara þennan dag en vegna heimsfaraldurs Covid-19 var ákveðið að hætta við það. Í staðinn verður skipulagsdagur hér í leikskólanum frá 8:00 til 16:oo.
Þar sem ríkislögreglustjóri hefur líst yfir óvissustigi á landinu vegna spár um aftakaveður eru íbúar Árborgarar vinsamlegast beðnir um að fylgjast vel með tilkynningum í fjölmiðlum og vera í góðu sambandi við starfsfólk leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila vegna mögulegrar röskunar á starfsemi skólanna þegar líður á daginn. Við reiknum með að skólahald grunnskóla geti verið …
Röskun á skólahaldi og íþróttastarfi í Árborg vegna vegna aftakaveðurs Read More »
Sumarfrí leikskólans er frá 4. júlí -7. ágúst 2019. Starfsdagur kennara verður fimmtudaginn 8.ágúst og opnum við því föstudaginn 9. ágúst 2019. Hér er tengill að læsisdagatali Menntamálastofnunar sem er skemmtileg leið til að halda börnum að bókum og hvetja til lestrar í sumarfríinu https://mms.is/sites/mms.is/files/sumarlaesisdagatal2019_loka.pdf og hér er óútfyllt læsisdagatal https://mms.is/sites/mms.is/files/sumarlestur_isl_notext_2019.pdf Hafið það sem allra best. Kveðja, starfsfólk Jötunheima
Leikskólinn Jötunheimar er eins og margir vita Heilsueflandi leikskóli. Starfsfólkið verður sífellt meðvitaðra um mikilvægi þess að rækta líkama og sál og einn liður í því er stofnun gönguhóps. Hópurinn heitir Gustur og hefur verið duglegur að fara í göngur bæði innan sveitarfélagsins sem utan. Hér eru dæmi um nokkrar göngur: Heilsustígurinn í Hveragerði, Laugardælahringurinn, …
Gönguhópurinn Gustur – Fimmvörðuháls 15.júní 2019 Read More »
Leikskólinn Jötunheimar auglýsir eftir aðstoðarleikskólastjóra frá og með 1. júní 2019 eða eftir nánara samkomulagi. Helstu verkefni Vinnur ásamt leikskólastjóra að daglegri stjórnun og rekstri leikskólans sem og skipulagningu uppeldisstarfsins. Er staðgengill í fjarveru leikskólastjóra og starfar þá samkvæmt starfslýsingu hans. Er faglegur leiðtogi og ber að kynna sér nýjungar í starfi og miðla þekkingu …
Leikskólinn Jötunheimar auglýsir eftir aðstoðarleikskólastjóra Read More »